avatar

Birkir Brynjarsson

Um mig

Hugarfari mínu í starfi má gjarnan lýsa með frasanum "1 + 1 = 3". Ég nýt þess best að vinna í teymi þar sem fjölbreytt sjónarmið og hæfileikar einstaklinga fá að skína, sem og teymið sjálft.

Ég er jákvæður, skipulagður, drifinn og þykir sérstaklega gaman að takast á við krefjandi áskoranir, þrautalausnir og skapandi verkefni. Ég nýt þess að miðla og læra nýja hluti.

Ég elska (meðal annars) Typescript (strict), Declarative Reactive Programming með RxJS, Utility-First CSS, ESLint, Prettier, Cypress, Skelina mína, Mac, Git, alvöru CI.

Ég tel að tilgangur lífsins sé fundinn í því að stöðugt bæta við sig ábyrgðum. Sem forritari endursplegast þetta í því að skrifa skýran kóða og kerfi sem auðvelt er að viðhalda, þannig að stanslaust sé hægt að takast á við nýjar áskoranir.

Ég hef unnið við vefhönnun síðan 2009 en líka ljósmyndun, grafíska hönnun og annað forritunar-/tæknitengt.

Ég er giftur og á tvö börn og hund með Ragnheiði Hörpu. Utan vinnu stunda ég útivist, íþróttir, spila tónlist og tek ljósmyndir. Ég var í hljómsveitinni Andrúm, er ávallt skáti og uppáhalds liturinn minn er gulur.

Menntun

Réttindi & Námskeið

  • Ökuréttindi

    B - Almenn ökuréttindi (2005)
    C - Aukin ökuréttindi, vörubifreið (2013)

Starfsreynsla

Aurbjörg
2023 -
Senior Full Stack Developer
Leiddi og hafði frumkvæði af því að endurskrifa framenda Aurbjargar, þar sem yfir 30 React JavaScript „míkró-frontendar“ með Webpack voru sameinaðir í eina Vite-React SPA með það að markmiði að stórbæta vörur og notendaupplifun auk þess að einfalda þróun og viðhald fyrir lítið þróunarteymi. Nýr framendi er skrifaður í TypeScript, notar Zod fyrir „type-validation“, React Query og „search parametra“ fyrir „state“ og shacn + radix UI + tailwind sem grunn að viðmóts-einingum. Innleiddi PWA-eiginleika, svo sem bakgrunnsuppfærslur, notendaviðvaranir og „lazy loading“.

Flutti innskráningarkerfi frá island.is yfir í passwordless innskráningu með SuperTokens auk þess að flytja innskráningu tímabundið til Auðkennis fyrir gamla vefinn eftir að island.is lokaði.

Gerði stórar breytingar á áskriftarkerfinu sem sér um að rukka áskrifendur en þar var af nægu að taka, þar á meðal dýrkeyptar villur sem voru ekki að rukka, tvírukka eða eyða notendum. Öll áskriftarmeðhöndlun var samþætt í Hangfire, logging stórbætt og stuðningur við afsláttarkóða útfærð.

Endurhannaði og útfærði nýja íbúðalánareiknivél í framendanum með auknum sveigjanleika, nákvæmari reikning og betri notendaupplifun í huga.
AGR
2018 - 2023
Hugbúnaðarsérfræðingur
AGR þróar hugbúnað til birgðastjórnunar og innkaupa-hagræðingar fyrir stór og meðalstór fyrirtæki. Meðal verkefna sem ég leysti eða tók þátt í að leysa hjá AGR má helst nefna:
AGR Client, endurskrif úr AngularJS í Angular. Setti upp ESLint reglur, strict typechecking, innleiddi data validation pattern, útfærði i18n og l10n, data formatting, timezone-, session management, application bootstrap. Kom að þróun flestra módúla/feature. Vann með Highcharts og AG Grid.
AGR Pool, NestJS bakendi og API fyrir sameiginleg gögn í AGR kerfinu (translations). Docker container keyrandi sem App Service á Azure og MSSql gagnagrunnur. Einnig Angular client til að bæta við tungumálum og þýðingum með tengingu við Google Translate API fyrir tillögur og möguleika á að hlaða CLDR locale skrám dýnamiskt.
Release Page: Python scripta sem sækir gögn frá GitHub releases og spýtir út statískar HTML síður. Deployað á Azure VPS, með Nginx, Certbot og Webhook fyrir sjálfvirkt build og deployment. Setti upp samskonar CD fyrir AGR documentation.
AGR Service: Endurskrif á bakenda úr .NET í .NET Core til að undirbúa AGR lausnina fyrir skýið (SOA eða Microservices). Setti upp CI pipeline til að ganga úr skugga um að EF Model væru í sync við database-first gagnagrunn auk þess að framfylgja Lint reglum með EditorConfig.
Login Portal: Angular client fyrir AGR Essentials skýja-lausnina.
Support Client: Hannaði og forritaði létt Angular kerfi sem ég kallaði Snek, til að hafa yfirlit og umsjón með AGR Essentials notendur (tenants). Allir componentar standalone og lazy loadaðir og Service Worker (PWA) sem prefetchar nýjar útgáfur fyrir hnökralaust CD.
State Management: Innleiddi redux-líkt state management í Angular með RxJS þar sem þjónustur geyma gögn í Subject (store) og viðmót fyrir aðgerðir (action) sem triggerar sync við API (effect) og reducer sem uppfærir gögnin. Endurskrifaði Reports hluta AGR Client kerfisins með þessum hætti auk þess að forrita alla componenta á declarative reactive máta.
Prófanir: E2E prófanir með Cypress, þar á undan Protractor og unit/component test með Cypress og Jest, þar á undan Karma.
Gagarín
Háskólinn í Reykjavík
2018
Lokaverkefni, Tölvunarfræði
Þróun á endurnýtanlegri hugbúnaðarlausn auk tóla til að flýta fyrir og hjálpa til við gerð þrívíðra kortaupplifanna. Hugsað fyrir þjóðgarða, friðlönd, á gestastofum og öðrum sýningum til að gefa gestum innsýn í og yfirlit yfir svæði í gagnvirku snertiviðmóti.
Lokaskýrsla, kynning með vídeó-demó, umsögn frá leiðbeinanda.
Gunnarsstofnun
Nýsköpunarsjóður Námsmanna
2017 - 2018
Leikjahönnuður og Forritari
Hannaði og þróaði tölvuleik fyrir sýningu um miðaldarklaustrið á Skriðu í Fljótsdal. Leikurinn felst í fjársjóðs- og spurningaleik þar sem leikmenn leita að vísbendingum og fjársjóðum með AR-tækni í snjallsímum. Verkefnið hófst sem Nýsköpunarverkefni styrkt af Nýsköpunarsjóði Námsmanna en hefur verið unnið áfram veturinn '17 - '18 og var fyrsta útgáfa prufukeyrð á Skriðuklaustri sumarið 2018.
Video-demo af leiknum í spilun á iPhone.
Háskólinn í Reykjavík
2016 - 2018
Dæmatímakennari
Meðfram námi í HR tók ég að mér dæmatímakennslu. Starfið fól í sér aðstoð í dæmatímum og yfirferð á verkefnum. Áfangarnir voru: Verkefnalausnir, 3ja vikna forritunarnámskeið (C++) og Gagnaskipan (C++).
Locatify
2016 (Sumar)
Forritari
Frumgerðarþróun á rauntímastaðsetningarbúnaði með 15-30cm nákvæmni til notkunar innandyra. Útfært með samskipti um Ultra-Wideband (UWB)-bylgjur með modúlu frá Decawave sem mælir flugtíma skeyta. Útfrá því var fjarlægð reiknuð og send í snjallsíma um bluetooth. Hér má lesa frekar um verkefnið á heimasíðu Locatify, ljósmynd af prótótýpunni. Starfið fól í sér töluverða rannsóknarvinnu, góðan inngang að rafmagnsfræði og C++ forritun.
Friend in Iceland
2015 (Sumar)
Vefforritari
Uppsetningu á kerfi Bókunar (bokun.io) í bæði app og á heimasíðu Friend in Iceland, auk annarra veflausna og utanumhald um bókaðar ferðir (uppsetning á FileMaker kerfi).
Bara
2014 - 2015
Markaðsstjóri
Kom heilsuvörum Bara á framfæri sem markaðsstjóri. Starf mitt fólst í vefsíðugerð, ljósmyndun, auglýsingar, textasmíði, þýðingar, bæklingar, umbúða- og vörumerkjahönnun, auglýsingadreifingu o.fl. Sjá má afrakstur þessarar vinnu á heimasíðu Bara.
EKC Sverige AB
2013
Vegmerking - Birgðabílstjóri
Birgðabílstjóri við mið- og kantlínumerkingar á stærri vegi og nýlagt malbik í Hordaland auk Sogn og Fjordane í Noregi. Ljósmyndir hérna.
Draumaliðið
2011 (Sumar)
Vefforritari
Hannaði og forritaði heimasíðu Draumaliðsins, nú SportHero.is. Setti upp verslunarkerfi sem gerði fyrirtækinu kleift að selja ljósmyndir af mótum. Hef reglulega sinnt viðhaldi og uppfærslum á síðunni síðan 2011.
Tónheimar
2007 - 2011
Gítarkennari
Gítarkennari skólans, kenndi bæði börnum og fullorðnum í hóptímum sem samanstóð af 2-4 nemendum með 4-6 hópa hvern vetur. Veturinn 2010-'11 kenndi ég einnig við Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna.

Hafa samband

Birkir Brynjarsson
Holtsgata 1, 101 Reykjavík
+354 772 7773

Forritunarmál

HTML
CSS
Python
C#
C/C++
SQL

Hugbúnaður

Unity3d
Photoshop
Illustrator
Lightroom

Tungumál

Íslenska
Enska
Norska

Ég ólst upp í Noregi til 9 ára aldurs í Bærum (Osló) og tala því reiprennandi norsku. Ég starfaði einnig í Noregi árið 2013 (Bergen, V-Noregi) og hef búið í Skövde, Svíþjóð (2011 - 2014).

Áhugamál

Ljósmyndun
Útivist
Leikjahönnun
Gítar- og píanóleikur
Gulur
Skíði
Fótbolti
Skák
Körfubolti
Hlaup

Meðmæli

Sigrun Gunnhildardóttir, Chief Product Officer AGR, sigrun@agrinventory.com, s. 666-0899

Önnur verkefni

WATWAT
Hönnun & Forritun - Tölvuleikur
2018
Staðbundinn fjölspilunarleikur fyrir 2-4 leikmenn, spilaður með game-controllers þar sem markmiðið er að slá hinum leikmönnunum út úr sólkerfinu. Unnið sem lokaverkefni úr Advanced Game Design með tveimur skólafélögum. Forritun sameiginleg, öll grafík eftir mig.
Video-demo, Mac útgáfa og frekari upplýsingar á itch.io, GitHub repository.
Monster Terminal
Hönnun & Forritun - Snjallsímaleikur
2017
Snjallsímaleikur fyrir bæði iOS og Android þar sem spilari stjórnar þremur lyftum með það að markmiði að flytja skrímsli á rétta hæð. Með tímanum birtast fleiri og fleiri skrímsli í bylgjum (svipað og í "tower-defense" leikjum) sem gerir leikinn erfiðari. Leikurinn var gerður í þriggja vikna námskeiði í HR með tveimur skólafélögum, forritun er sameiginleg, lyftur og lyftu-animation eftir mig.
Video-demo, GitHub repository.
Aðrir Tölvuleikir
2017 - 2018
Potato Wars, 2018. Demo, GitHub.
Death In Transmission, 2018. Demo, GitHub.
Wrecked Teddy, 2018. Demo.
Svenskt Roligt Roadtrip, 2017. Demo, GitHub.
aMazeBalls, 2017. Demo, GitHub.
Breakout Bubbles, 2017. Demo, GitHub.
Flatbökusamsteypan
Ljósmyndun
2016
Flabökusamsteypan er verkefni sem snéri að því að búa til flatböku úr alíslensku hráefni.
Ég var ljósmyndari og sá um Instagram Flatbökusamsteypunnar.
Heimasíða, stuttmynd.
Blær
Ljósmyndun - Veftímarit
2015
Ljósmyndaði fyrir vefritið Blær sem gefið var út 2015.
ClayToob
Hreyfimyndagerð - Sketchar
2010 - 2011
Gaf út stop-motion endurgerðir af viral-videoum ásamt nokkrum vinum úr Margmiðlunarskólanum undir nafninu ClayToob. "Leiraði" líka heimasíðuna sem hélt utanum vídeóin. Náðum því markmiði (af bucketlistanum) að fá >100.000 view á YouTube árið 2012.
YouTube rás ClayToob.
Andrúm
Hljómsveit
2004 - 2008
Sem unglingur átti hljómsveitin Andrúm hug minn allan. Við gáfum út plötuna Andvakar árið 2008 sem fékk ágæta dóma og gaf mér tækifæri til að spreyta mig í tónsmíðum, útsetningum, sviðsframkomu og fleiru.
Tónlistin er aðgengileg á Spotify en einnig á heimasíðu Andrúm sem ég setti saman árið 2012.
Heimasíðugerð
2009 -
Síðan 2009 hef ég tekið að mér hönnun, forritun og uppsetningu vefsíðna, margar með wordpress bakenda. Hef ég reynt að minnka við mig þessa þjónustu hægt og rólega, í dag er ég með VPS hjá DigitalOcean og set helst bara upp statískar html síður.
Síður: 47apartments.com (2009), andrummusic.com (2012), antonsmari.com (2015), baradesign.is (2012), birkir.is v1 (2009) v2 (2010), borisfilm.biz (2010), brynhildur.net (2010), brynjarsson.com (2015), claytoob.com (2011), draumalidid.is (2011), elfarsmari.com (2015), liljam.is (2011), munstur.is (2010 -), northernwavefestival.com (2010), saltkraka.com (2011), soffias.is (2015), sym.is (2011), tannvernd.is (2010), thoraart.com (2009), tonaslod.is (2009)