Hugarfari mínu í starfi má gjarnan lýsa með frasanum "1 + 1 = 3". Ég nýt þess best að vinna í teymi þar sem fjölbreytt sjónarmið og hæfileikar einstaklinga fá að skína, sem og teymið sjálft.
Ég er jákvæður, skipulagður, drifinn og þykir sérstaklega gaman að takast á við krefjandi áskoranir, þrautalausnir og skapandi verkefni. Ég nýt þess að miðla og læra nýja hluti.
Ég elska (meðal annars) Typescript (strict), Declarative Reactive Programming með RxJS, Utility-First CSS, ESLint, Prettier, Cypress, Skelina mína, Mac, Git, alvöru CI.
Ég tel að tilgangur lífsins sé fundinn í því að stöðugt bæta við sig ábyrgðum. Sem forritari endursplegast þetta í því að skrifa skýran kóða og kerfi sem auðvelt er að viðhalda, þannig að stanslaust sé hægt að takast á við nýjar áskoranir.
Ég hef unnið við vefhönnun síðan 2009 en líka ljósmyndun, grafíska hönnun og annað forritunar-/tæknitengt.
Ég er giftur og á tvö börn og hund með Ragnheiði Hörpu. Utan vinnu stunda ég útivist, íþróttir, spila tónlist og tek ljósmyndir. Ég var í hljómsveitinni Andrúm, er ávallt skáti og uppáhalds liturinn minn er gulur.
Vorið 2018 útskrifaðist ég með ágætis einkunn og Bachelor
gráðu í Tölvunarfræði frá
Háskólanum í Reykjavík
(2015-'18).
Útskriftarskirteini og einkunnir.
Frá 2011-'13 stundaði ég nám við Högskolan i Skövde í Svíþjóð og lauk 81/180 einingum til BSc í Tölvunarfræði. Reyndist mér góður undirbúningur undir námið í HR. Lauk áföngum í forritun (C++), hlutbundinni forritun (Java), gagnasafnsfræðum, stýrikerfum, tölvusamskiptum, tölvuöryggi, vefhönnun, PHP/XML vefforritun, Cisco CCNA o.fl.
Tveggja ára nám (2009-'11) frá Margmiðlunarskólanum (Tækniskólinn) í þrívíddarvinnslu, hreyfimyndagerð, stop-motion, eftirvinnslu (compositing), vefhönnun, myndvinnslu o.fl.
B - Almenn ökuréttindi (2005)
C - Aukin ökuréttindi, vörubifreið (2013)
Ég ólst upp í Noregi til 9 ára aldurs í Bærum (Osló) og tala því reiprennandi norsku. Ég starfaði einnig í Noregi árið 2013 (Bergen, V-Noregi) og hef búið í Skövde, Svíþjóð (2011 - 2014).