Fluttur til Svíþjóðar
10
nóv
Jæja… Ákvað að henda saman í smá þráð um hvar ég er staddur í heiminum…
8. ágúst flutti ég til Svíþjóðar með Jafet og Oddi og hóf nám við Háskólann í Skövde. Ég er að læra tölvunarfræði en Jafet og Oddur eru að læra “Web Development”. Við búum í 300m fjarlægð frá skólanum í 3. herbergja, tæplega 50 fermetra íbúð. Það er nokkuð þröngt en við höfum það alveg ljómandi ágætt :)

Norra Trängallén 1 - Við búum í íbúðinni á fyrstu hæð til hægri þar sem er búið að draga fyrir þrjá gluggana
Fyrstu þrjár til fjórar vikurnar í íbúðinni héldum við til á loftdýnum og dagarnir fóru að mestu í að skoða bæinn og ganga frá ýmsum hlutum eins og kennitölu. Við nýttum líka góðan tíma í að skipuleggja hvernig við ætluðum að innrétta íbúðina og teiknuðum hugmyndir upp í SketchUp forritinu frá Google.
Það kom síðan að því að farangurinn minn kom til Varberg með Samskip frá Íslandi. Þá leigðum við flutningabíl af Statoil og tókum heilan dag í að keyra frá Skövde til Varberg með viðkomu í IKEA í Gautaborg. Í IKEA tókst okkur að eyða nokkrum kílóum af sænskum krónum í fjall af bylgjypappa sem við tróðum í bílinn. Ferðin var þó ekki óhappalaus en við villtumst á heimleiðinni þegar við gerðum ráð fyrir að þjóðvegurinn milli Gautaborgar og Stokkhólmar lægi í gegnum Skövde :P. Við vorum því komnir langleiðina til Örebro í myrkrinu sem er í um 150km fjarlægð frá réttum áfangastað.
Við gerðum þá snilldar fjárfestingu að kaupa hjólakerru á útsölu í íþróttaverslun hér í bænum… Kerruna fengum við á 300SEK (1300 var upphaflega verðið) og hefur hún verið notuð til að flytja sjónvarp, eldhúsborð og sófa sem við höfum keypt á hinu sænska barnalandi (blocket.se)… Við tökum hana alltaf með þegar farið er að versla í matinn, auk þess sem hún var nokkrum sinnum notuð sem eldhúsborð á meðan við bjuggum á gólfinu.
…Annars er bara það að frétta að skólinn fór strax á fullt, hér er önnin skipt í tvær lesperíódur þannig að ég er alltaf bara í tveimur áföngum í einu og tek próf á miðri önninni. Ég keypti mér rúmlega 20 ára gamalt götuhjól sem ég nota mikið… og svo gengur sambúðin hjá okkur félögunum alveg ljómandi vel… Hér er allt rusl flokkað, við eldum kvöldmat á næstum hverjum degi :) og svo glápum við að sjálfsögðu á enska boltan saman um helgar :)
Hér eru ýmsar myndir… Á campus kortinu er húsaþyrpingin sem við búum í við rauða punktinn lengst til hægri… Hér er hægt að sjá loftmynd af svæðinu.
Ein ummæli við “Fluttur til Svíþjóðar”
Skrifa ummæli...
























Fjandi er þetta hýrt og skemmtilegt af myndunum af dæma!