Ég heiti Birkir Brynjarsson - fæddur 2. mai 1988 (24 ára)
Ég er nemandi í Margmiðlunarskólanum (MMS) þar sem ég læri þrívíddarhönnun, kvikun, vefsíðugerð o.fl. Auk þess sem ég starfa sem gítarkennari í Tónheimum.
Frítíma mínum er varið í að spila á hljóðfæri, hlusta á tónlist og safna vínylplötum, vafra um á netinu og föndra í tölvunni. Stunda útivist, spila fótbolta og körfubolta einu sinni í viku. Ég kýs að ferðast um með strætó, er áhugamaður um ljósmyndun og kvikmyndun og er stuðningsmaður Liverpool í enska og Celtics í NBA.
Foreldrar mínir eru Brynjar Hólm Bjarnason (1955) og Bjargey Ingólfsdóttir (1959). Ég á tvær systur, Bergdis Inga (1986) og Kristjana Björk (1994).
Ég fæddist í Reykjavík en fluttist snemma til Noregs þar sem ég bjó til níu ára aldurs. Fyrst um sinn bjó fjölskyldan á Nesøya en síðan á Kjonejordet 6. Frá uppeldinu í Noregi er mér minnisstætt skíðaferðirnar í Íslendingahúsið við Norefjell og um páskana til Geilo, gönguferðirnar á Kolsåstoppen og kalvøya, að skauta á frosnum Oslófirðinum á veturna og sigla í honum á sumrin... Ég tala norsku ágætlega og held ennþá tengslum við gamla norska vini.
Síðan við fluttum heim hef ég búið í Garðabænum. Ég fór í Menntaskólan við Hamrahlíð á náttúrufræðibraut að loknu grunnskólanámi og á 7 önnum við skólan tókst mér næstum að verða stúdent, eina sem mig vantar upp á eru tveir frönsku áfangar sem ég lagði aldrei í að klára.
* * *
Eftir MH var ég hálft ár í Upplýsingatækniskólanum þar sem ég tók áfanga í vefsíðugerð, hönnun og myndvinnslu áður en ég hóf nám í Margmiðlunarskólanum en þaðan mun ég útskrifast vorið 2011.
Ég hef spilað á hljóðfæri síðan ég var 7 ára, fyrst lærði ég á píanó í tvö ár í Noregi en þegar ég flutti heim (til Íslands) prófaði ég trommur í tvö ár en skipti aftur á píanó í önnur tvö ár við Tónlistarskólann í Garðabæ.
Því næst fór ég að læra á gítar og líkaði það fljótlega mjög vel. 16 ára færði ég mig í Tónlistarskóla FÍH og lærði hjá Ásgeiri Ásgeirssyni, þaðan lauk ég IV. stigi á jazz-gítar og tón- og jazz-hljómfræði I og II. Veturinn '07-'08 lærði ég tölvutónlist við Tónlistarskóla Kópavogs.
Ég hef kennt á gítar í Tónheimum frá því haustið 2007, þar eru nemendurnir flestir á aldrinum 10 - 18 ára og fer kennslan fram í 3-4 manna hópum. Ég hef líka kennt einn vetur á gítar við Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna.
* * *
Ég var í hljómsveitinni Andrúm frá 2004 og þar til við lögðum upp laupana árið 2008, sama ár gáfum við út plötuna Andvakar. Mikið var lagt í þá smíði, hún var tekin upp í stúdíó sundlauginni og Hljóðriti og sá Aron Arnarson um upptökustjórn. Kostnaður við gerð plötunar fór í 1500kr á hvert framleitt eintak (m.v. 1000stk) og leið 1 1/2 ár frá því að við hófum upptökur þar til platan var gefin út. Andvakar inniheldur aðeins 6 lög og er tæpar 50 min að lengd en þrátt fyrir það fékk hún góðar viðtökur, þar á meðal 5/5 stjörnur í Morgunblaðinu.
Í gegnun tíðina hef ég sankað að mér ýmsum tækjum til tónlistar-flutings/framleiðslu og hef ég aðstæður fyrir græjurnar í Tónlistarþróunarmiðstöðinni (TÞM). Þangað fer ég allaveganna einu sinni í viku með Jónu Pöllu (úr Andrúm) en við höfum verið að vinna að því að endurútsetja og taka upp lög eftir aðra.
