Stóra project sumarsins
01
sep
Stóra verkefni sumarsins fólst í að helluleggja, en við pabbi tókum okkur til og hellulögðum norðurhliðina í Háhæðinni. Þessi hlið hússins hefur alltaf verið mjög ílla hirt um. Frágangurinn á hellulögninni sem var lagður fyrir um 16 árum (að ég geri ráð fyrir), var ekki nógu góður og allt orðið vel loðið af mosa og grasi.
Við þurftum að rífa upp allar hellurnar sem voru þarna fyrir, grafa síðan vel undan þeim og öllu í kring. Setja nýjan sand… stilla af, þjappa og slétta sandinn …Lesa meira »
Nafnspjald
27
júl
Eftir eitt ár geri ég fastlega ráð fyrir að útskrifast með diplómu í margmiðlunarfræðum úr Margmiðlunarskólanum (MMS) … Margmiðlunarfræðingur er ekki lögverndað starfsheiti og því ákvað ég til gamans að taka forskot á sæluna og titla mig hér eftir sem margmiðlunarfræðingur :-)
Ég er því skráður sem margmiðlunarfræðingur í símaskránni, en einnig skráði ég bæði veffang og netfang eins og sjá mér hér
En það var nefnilega nafnspjald sem ég var að vinna að sem kom þessu ákvörðunarferli í gang, enda fannst mér alveg nauðsynlegt að hafa einhvern starfstitil á nafnspjaldinu.
Nafnspjaldið er í stíl við heimasíðuna… og núna vantar mér bara að finnan einhvern þokkalega ódýran og góðan aðila til að framleiða þessa snilld fyrir mig, svo ég geti verið með fullt veski af nafnspjöldum :)
CSS-Sprites
26
júl
CSS-sprites er tækni í vefhönnun sem felur í sér að sameina margar myndir í eina. Þetta er gert bæði til þess að minnka heildar-stærð mynda sem notaðar eru í útlit heimasíðunnar og til að fækka svokölluðum HTML-Requestum… með þessum hætti verður síðan léttari fyrir notendur.
Hlekkir á heimasíðum taka gjarnan breytingum þegar músinni er rennt yfir þá (hover), með þessum hætti fær notandinn svörun við það sem hann er að gera á heimasíðunni og síðan virkar líflegri… Í valmyndum á heimasíðum eru gjarnan notaðar myndir í stað texta og þegar músin er færð yfir myndirnar tekur myndin breytingum (birtist ný mynd). CSS-kóðinn fyrir slíkan takka myndi eflaust …Lesa meira »
Heimasíða TÞM
17
júl
Var að bæta í Portfolio-ið mitt þessa heimasíðu sem ég vann á fyrstu önn Margmiðlunarskólans. Heimasíðan er fyrir Tónlistarþróunarmiðstöðina úti á Granda en það er æfingaraðstaða fyrir fjöldan allan af listamönnum/hljómsveitum.
Þetta var lokaverkefni í Viðmótshönnun á 1. önn Margmiðlunarskólans sem fól í sér að gera fullbúna heimasíðu fyrir íslenskt sveitarfélag. Ég ákvað hinsvegar að leita til kennarans með aðra hugmynd og stakk upp á því að hanna heimasíðu fyrir TÞM. Ég hafði fyrr á önninni gert kynningarmyndband fyrir miðstöðina og vissi að heimasíðan þeirra væri lítið gagnleg… og því fannst mér frábær hugmynd að hanna heimasíðu sem hefði góða möguleika á að vera tekin í notkun af TÞM.
Það var hinsvegar ekki fyrr en núna í sumar sem ég leitaði til Danna Pollock, forstöðumann TÞM og sýndi honum síðuna… honum leist mjög vel á hana og ég setti hana strax upp… Síðuna má finna á slóðinni tonaslod.is
Greindarvísitölupróf
16
júl
Vafraði aðeins um netið í leit að Greindarprófum og prófaði nokkur… gaman að fá svona niðurstöður þó ég viti ekki hvað er að marka þetta þar sem prófin eru ekki á íslensku (móðurmálinu mínu) :-) … “Það kemur náttúrulega engum á óvart að ég er fluggáfaður (hrokafullur tónn)… og eru niðurstöður samkvæmt því”
IQTest.com – 134
Free-IQTest.net – 138
IntelligenceTest.com – 129




